Leita í fréttum mbl.is

Reunion hittingur

Jæja gott fólk ! Nú á að efna til smá gleði fyrir 1975 árganginn úr Ölduselsskóla ;-)  Alltof langt að láta 5 ár líða.......Við ætlum að hittast þann 21.febrúar nk. á veitingastaðnum Balthazar (gamli Café Victor ) á efri hæð.Fyrir þá sem vilja verða léttir réttir og drykkir á ótrúlega góðu verði og við verðum með efri hæðina alveg útaf fyrir okkur frá 20 til miðnættis. Endilega allir að mæta, það verður DJ á svæðinu sem mun spila það alflottasta frá grunnskólaböllunum;-)Vonumst til að sjá sem flesta því það verður rífandi stuð eins og alltaf hjá þessum hópi. Hér er svo matseðillinn:

“Sá meinholli”
Hamborgari að hætti hússins, salat, tómatur, rauðlaukur, ostur, fitulaus heimalöguð hamborgarasósa

“Spaghetti kre...”
Oregano-marineraður kjúklingur ,chili, pesto, tómatteningar, balsamico

“Quesadillas Mexico”
Fajitas-kryddaður kjúklingur, grillað grænmeti,
svartar baunir, cheddarostur

Bæjarins besta”
Salat, kjúklingur, beikon, brauðteningar, parmesan og svartur pipar

Allir réttir á sama verði kr 1290

Bjór 0,5 kr 500.-
Húsvín hvítt eða rautt 1/1 kr 2,900
Glas Léttvíni hvítt eða rautt kr 750.-
Snafsar kr 500.-
Vodka gin rom 3 cl í gosi kr 800.-
Ávaxta bjór (Breaser) kr 750.-
Balthazar ala Mojito kr 1200.-

 Vil svo minna á Ölduselsskóla grúbbuna á facebook, þar er búið að setja inn myndir frá síðasta og þarsíðasta reunioni, endilega skráið ykkur í hana svo við getum haldið hópnum saman. Ef þið lendið í vandræðum með að skrá ykkur í hana þá endilega látið mig (Elísabetu Láru) vita, því grúbban er stillt þannig að þú þarft að vera skráður í Iceland tengslaneti.. eða network fyrir þá sem eru með facebook’ið á ensku. Kveðja, Elísabet Lára, Karl Friðrik, Hulda Rós og Helga Dóra

10 mánuðum seinna

Koma loksins myndir....

Ég er búin að dæla inn á Feisbúkkið um 150 myndum...... 

Vona að þið séuð öll þar og kíkið á...... 

Grúbban heitir Ölduselsskóli árgangur 75.... 

Það eru líka hugmyndir uppi að hittast í kringum áramótin núna. Bara partý á einhverjum góðum stað. Engin matur eða neitt svoleiðis, bara kósí lítill salur sem hægt er að hittast og spjalla. Við þreytumst víst seint á að rifja upp góðu tímana í Breiðholtinu...

Hlakka til að sjá ykkur... 

Kveðja Helga Dóra.... 


Tilkynning

Kæru skólasystkini,

 Nú er búið að opna grúbbu fyrir árgang "75 á Facebook.. eða Fésbók eins og sumir kalla það, þannig að nú er um að gera að skrá sig í grúbbuna svo við getum haldið áfram að vera í svona frábæru sambandi eins og sýnt og sannað hefur með þessari síðu hérTounge 

Grúbban á facebook er lokuð almenningi.. þannig að einungis meðlimir geta séð grúbbuna og myndir þar inná, ég er að vinna í því að færa allar myndir inná síðuna as we speak.. svo það er um að gera að fara skoða hvað er komið inná hana.

Eitt líka sem þarf að koma fram er að þið þurfið að vera skráð í Iceland Network til að hægt sé að bjóða ykkur í grúbbuna.. þannig að Karl Friðrik og Helga Dóra... redda því núna, því ég gat ekki boðið ykkur í hana áðanGrin

Meira var það nú ekki, skjáumst gott fólkKissing

Elísabet Lára


Hér kemur auglýsingin sem send var á alla

3 Dagar gott fólk!!

Við minnum á að það styttist óðum í REUNION 1975 árgangs Ölduselsskóla.

Við ætlum að hittast í Fóstbræðrasalnum, Langholtsvegi 109-111 laugardaginn 19. janúar 2008 kl. 19:00.

Við byrjum á fordrykk og skellum svo í okkur dýrindis mat.

Opinn bar verður á staðnum til að gleðja þyrstar meyjar og sveina.

Það hefur myndast gríðarleg stemmning fyrir þessu kvöldi enda allt skemmtilegt fólk sem tilheyrir þessum árgangi.

Verðið fyrir herlegheitin eru 5.500 kr á mann. Vinsamlega leggið inná eftirfarandi reikning NÚNA!

 

0101-26-110875

Kt. 110875-5179

Hlökkum til að sjá ykkur öll í góðum gír.

Öldunördanefnd 2008

Íris, Anna Lára, Elísabet, Helga Dóra, Arna Páls, Halldóra Æsa og piltarnir Ásgeir, Kalli, Ólafur Tryggvi og Sigurpáll.


4 dagar gott fólk!!!

Nú er bara að drífa sig að borga og koma sér í djammgírinn elskurnarW00t Heyrði í Valda Stunt í dag.. hann kemst ekki því hann er að leika í bílaauglýsingu um helgina ... voða busy kallTounge en hann bað innilega að heilsa ykkur öllum.

Fékk svo myndir sendar frá Jóhönnu Maríu áðan .. og hér koma nokkrar þeirra og restin af þeim er inní myndalbúminu:

null

IMG_0009

 

Ji hvað við vorum/erum TÖFFLoL 

kveðja,

Elísabet Lára


Stundin er að nálgast gott fólk!

Jæja elsku Ölduselsskólafólk.. nú fer að líða að Reunioninu og nú fer hver að verða síðastur að borga fyrir herlegheitin. Fresturinn er til 10 Janúar svo við hvetjum ykkur til að borga sem fyrst svo nefndin geti gengið frá öllu sem þarf að ganga frá.

Svo vildi ég líka minna á að það væri vel þegið ef þið nenntuð að kíkja eftir myndum og koma með á sjálft kvöldið svo hægt sé að safna heimildum .. nú eða senda þær á lisatryggva@simnet.is og ég get komið þeim hingað inná síðuna.

Fleira var það ekki ... koma svo.. borga dúllurnar mínar!!W00t 

Helga Dóra og Kristinn flott á því á síðasta reunioniWizard

Kv. Elísabet Lára


Þriðji hittingurinn

Jæja ætlum að hittast í kvöld heima hjá mér kl. 21:00. Erum búin að ná í held ég alla í árganginum og vonandi sjá sér flestir um að mæta þann 19. janúar.

Ég setti inn myndir í myndalbúmið sem Sigurpáll og Adda létu mig hafa um fyrir nokkrum vikum.. alltaf jafn gaman að sjá andlitin úr ÖldóGrin

Kalli alltaf jafn flotturJoyful

Kveðja,

Elísabet Lára


Ljóð

Ástin gerir engum mein

Ástin er til bóta

Ástin kemur ofan frá

og endar á milli fóta

Þetta held ég örugglega að hafi komið úr ljóðasmíðum Kalla árið 1991

Hér kemur eitt sem Rut samdi í 8. bekknum

Davíð Örn is a little flower

and he ones a blck suitcase

he thinks he´s got a lot of power

but only enought to hold a vase

every morning he takes a showe

and puts on a lot of aftershave on his face.

Þessi ásamt nokkrum sem gengu á milli Helgu G og Sigurpáls í einhverju partýi eru í bókinni minni góðu. Restin er samt of dónaleg til að birta held ég????Wink

 

 


Verið velkomin öll saman!!

Núna ætti að vera búið að hringja í eiginlega alla úr okkar frábæra árgangi. Eins og við er að búast eru einhverjir að meika það í útlöndum og einn og einn svona næstum týndir. Ég ætla að setja saman lista yfir þá sem hefur ekki náðst í og kannski við hjálpumst að að finna þá. Líka ef það eru einhverjir sem ekki útskrifuðust úr Ölduselsskóla en eru vissulega "einir af okkur"Grin þá viljum við endilega heyra af þeim. Svo að núna er tími til að gramsa upp myndir og eitthvað annað skemmtilegt sem ykkur dettur í hug að setja inn á síðuna. Ég veit að allavegana Beta hefur aðgang að skanna ef það eru einhverjir sem eru eins tæknivæddir og við Halldóra að vita næstum ekki hvað það er Wink   Endilega verið dugleg að "stimpla" ykkur inn og leyfa okkur öllum að heyra af ykkur, hvað þið eruð að brasa og soliss. Kveðja með brjálaðslegri tilhlökkun Helga DóraW00t

Myndir úr skólablaði

Svo eru fleiri myndir á leiðinni, set þær líklega inn á morgun en hún Helga Dóra kom með fullt af myndum til mín í gærGrin Það mættu fleiri endilega vera duglegri að koma til mín myndumWink Svo styttist í fundinn.. en hann verður núna á fimmtudaginn næsta.. at my place.

kveðja, Elísabet Lára


Næsta síða »

 

Öldusel Árgangur "75
Öldusel Árgangur "75
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband